Gomez á leið til Wigan
18.6.2009 | 19:01
Roberto Martinez nýskipaður knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Wigan er að fá sinn fyrsta leikmenn frá því hann tók við starfinu hjá Wigan. Spænski miðjumaðurinn Jordi Gomez mun ganga í raðir Wigan á næstu dögum. Hann er á mála hjá Espanyol en var í láni hjá Swansea á síðustu leiktíð en þar var Martinez við stjórnvölinn.
Að því er fram kemur í netútgáfu Daily Mailhefur Espanyol samþykkt að taka 1,7 milljón punda tilboði frá Wigan í Gomez og mun leikmaðurinn skrifa undir fjögurra ára samning.
Birmingham og Celtic hafa bæði verið á höttunum eftir Gomez, sem átti góðu gengi að fagna með Swansea á síðustu leiktíð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning